Gæðastefna FMS
Gæðastefna Fiskmarkaðs Suðurnesja
- FMS lítur á starfsemi sína sem mikilvægan hlekk í virðiskeðjunni og að starfsemi fiskmarkaða sé mikilvægur hlekkur til að viðhalda gæðum þess hráefnis sem er landað í gegnum markað.
- FMS leggur sig fram við að viðhalda gæðum þar sem áhersla er á að viðhalda stöðugri kælingu þess afla er fer í gegnum starfstöðvar fyrirtækisins.
- FMS skilgreinir sig sem þjónustufyrirtæki og hefur því það markmið að uppfylla væntingar seljanda og kaupenda fisks af markaði á hverjum tíma.
- FMS stefnir að því að vera leiðbeinandi varðandi meðferð á afla um borð í bátum með það að markmiði að afla sé ávallt skilað í sem bestu ástandi á markað.
- FMS leggur áherslu á að starfsmenn þess hafi þekkingu á virðiskeðjunni frá veiðum á disk neytanda, og geri sér grein fyrir mikilvægi réttrar kælingar og góðrar meðferðar á fisk sem fer í gegnum starfstöðvar FMS.
- Stjórnendur FMS gera ráðstafanir þannig að fræðsla starfsmanna varðandi meðferð afla sé stöðug og regluleg.
- Stjórnendur FMS leitast við að gæta hagræðingar í rekstri en jafnframt gæta þess að aðbúnaður starfsstöðva sé á þann veg að ekki komi niður á meðhöndlun og umsýslu aflans.
- Stefna og markmið FMS er að verklag um innskráningar og meðhöndlun afla, þar með talið mælingar á gæðum og ástandi sé það sama á milli starfsstöðva.
- FMS leggur sig fram um að starfstöðvar þess séu snyrtilegar jafnt að utan sem innan.
- Gæðamál, markmið og stefna er í ferli þar sem stöðugar úrbætur og framfarir eru hafðar að leiðarljósi.
Ragnar H. Kristjánsson, framkvæmdastjóri FMS




