Fiskmarkaður Suðurnesja

Hafnargötu 8
245 Sandgerði
Sími 422-2400
Fax: 420-2311
fms (hjá) fms.is


Leita á síðunni




Reiknistofa Fiskmarkaðanna

Fiskistofa

Veðurstofa

EAFPA

Iceland Responsible Fisheries

Um FMS


Stjórn Fiskmarkaðs Suðurnesja

Í stjórn FMS sitja:

Saga Fiskmarkaðs Suðurnesja

Fiskmarkaður Suðurnesja hf. var stofnaður 24. maí 1987 og fór fyrsta uppboðið fram 14. september sama ár. Ákveðið var að fara ekki hefðbundnar leiðir við að bjóða upp fisk heldur var þegar í upphafi haldið uppboð á tveimur stöðum (Njarðvík og Grindavík) samtímis. Fljótlega bættust aðrir staðir eins og Hafnarfjörður, Þorlákshöfn og Sandgerði við og var þá einsdæmi í heiminum að fiskur var seldur á mörgum stöðum í einu uppboði samtímis, óséður. Nú er allur fiskur seldur á þennan hátt á Íslandi í dag og hefur þetta vakið athygli erlendis og menn þar einnig tekið þetta upp, í litlum mæli þó.

Núna rekur FMS fiskmarkað í fimm höfnum. Þessir staðir eru Grindavík, Sandgerði, Hafnarfjörður, Ísafjörður og Höfn Hornafirði. Þessar hafnir tengjast saman í eitt uppboð ásamt öðrum fiskmörkuðum sem allir nota Tengil, sem er tölvukerfi Reiknistofu fiskmarkaða hf sem sér um sameiginleg málefni þeirra fiskmarkaða sem nota Tengil.

Í fyrstu var ætlunin að vera ekki með neina móttöku á fiski heldur áttu kaupendur að sækja fiskinn sjálfir í skipin. Þetta breyttist, því fljótlega kom í ljós að nauðsynlegt var að hafa aðstöðu til að taka á móti fiski frá skipunum, og voru tekin hús á leigu til þess að sinna því. Síðan hefur þessi þjónusta verið að aukast með lyftaraþjónustu á bryggju og sölu á ís og fl.

Uppbygging FMS í þessari ungu atvinnugrein hefur verið samkvæmt getu félagsins hverju sinni og miðað að því að bæta þjónustu við viðskiptavini skref fyrir skref.

Á 10 ára afmæli félagsins 24. maí 1997 var tekið í notkun nýtt rúmlega 2000 fermetra hús í Sandgerði sem félagið lét byggja. Á 20 ára afmæli félagsins árið 2008 var tekið í notkun nýtt rúmlega 1400 fermetra hús í Grindavík sem félagið lét byggja. Með tilkomu þessa húsa er aðstaða FMS á öllum stöðum góð.

FMS selur á Suðurnesjum 20-30 þúsund tonn árlega og auk þess eru seld 4-8 þúsund tonn á Ísafirði.

Fiskmarkaður Suðurnesja hf. á hlut í öðrum félögum sem hafa sömu eða svipaða starfsemi með höndum. Þessi félög eru: