Fiskmarkaður Suðurnesja

Hafnargötu 8
245 Sandgerði
Sími 422-2400
Fax: 420-2311
fms (hjá) fms.is


Leita á síðunni




Reiknistofa Fiskmarkaðanna

Fiskistofa

Veðurstofa

EAFPA

Iceland Responsible Fisheries

Starfsreglur


1. Tilkynning um sölu á markaðinn.

1.1. Skip, sem landar á fjarskiptamarkaði, verður að tilkynna aflamagn, aflasamsetningu, stærð, löndunarstað og komutíma. Þar að auki þarf að tilkynna hvort aflanum er landað lausum, í körum eða kössum.

1.2. Skip er áætla að selja afla sinn á gólfi tilkynni sig með minnst 1 sólarhrings fyrirvara, þetta á þó ekki við um dagróðrabáta. Dagróðrabátar tilkynni sig í síðasta lagi 1 klukkustund fyrir sölu.

1.3. Skylt er að skip tegundaflokki fiskinn, þ.e. þorskur, ýsa, ufsi o. s. frv. Skipstjóri eða staðgengill hans skal tilgreina ef um undirmálsfisk er að ræða og hvert magn hans er. Þar að auki verður skip að flokka milli lifandi- og dauðblóðgaðs fisks, og tilgreina aldur dauðblóðgaða fisksins. Þegar útileguskip eiga í hlut er æskilegt að dagmerkja aflann og tilgreina þær upplýsingar við tilkynningu, ef um fjarskiptauppboð er að ræða.

1.4. Rísi deilur milli kaupanda og seljanda vegna “rangra” upplýsinga skips um afla, aflasamsetningu, gæði eða komutíma, skal tafarlaust bera fram kvörtun við fiskmarkaðinn, sem skera mun úr um réttmæti hennar. Varðandi viðbrögð við röngum upplýsingum vísast í kafla 3, sem um það fjallar.

1.5. Samkvæmt lögum skal allur afli vigtaður af löggiltum vigtarmanni. Ráðstöfun við löndun afla sem seldur er í fjarskiptum er í höndum seljanda, sem fær upplýsingar hjá markaðinum um hverjir kaupendurnir eru, ef ekki er um þjónustu FMS að ræða á staðnum. FMS mun hins vegar sjá alfarið um vigtun og afgreiðslu aflans ef um sölu á gólfi er að ræða, og ef FMS er með þjónustu á löndunarstað.

1.6. FMS sér einnig um miðlun á fiski. Seljandi lætur þá vita um tegundir, magn, stærð og löndunarstað. FMS reynir að finna kaupanda að aflanum á tilsettum stað fyrir ákveðið verð og fer uppgjör og greiðsluskil fram á sama hátt og ef um uppboð er að ræða. Á sama hátt getur kaupandi óskað eftir ákveðnum tegundum til kaups og reynir FMS að finna seljanda að þeirri tegund.

1.7. FMS tekur ekki þátt í deilum um eignaraðild á afla. Handhafi fisksins eða sá er tilkynnir afla til sölu, gefur einnig upp hverjum skal greiða andvirðið. Handhafi telst vera sá sem biður um sölu á fiskinum. Komi annar aðili til sem kveðst vera eigandi aflans ber honum að fá leiðréttingu annars staðar. Reiknistofa fiskmarkaða hf (RSF) greiðir handhafa aflans andvirði hans (sbr. kafla 4.2) í samráði við FMS.

2. Skuldbindingar.

2.1. Þegar skip hefur tilkynnt afla sinn til sölu á FMS, er það skuldbundið til að selja afla sinn þar á því verði sem fæst. Það er, eftir tilkynningu um sölu, er ekki hægt að breyta né hætta við. FMS ábyrgist að allur afli skips seljist, en ekki á hvaða verði hann selst. Með þessu er tryggt að losun skips fari fram strax eftir komu þess. Löndunarstaður verður að standast ella ber seljandi aukakostnað sem sannanlega fellur til ef löndunarstaður breytist.

2.2. Kaupandi sem kaupir afla sem er afhentur á flutningstæki við skipshlið er skylt að hafa flutningstæki reiðubúið á komutíma skips. Landa skal afla í þeirri röð sem hann hefur selst á FMS, ef um fleiri en eitt boð er að ræða af sömu tegund og fleiri en einn kaupanda.

2.3. Ef afli er seldur í umbúðum, ber kaupanda að skila umbúðunum aftur til seljanda innan 3ja sólarhringa frá löndun. Eiganda umbúðanna er þó heimilt að setja aðrar reglur og skulu þær þá kynntar.

2.4. Það er með öllu óheimilt fyrir seljendur og kaupendur að nota umbúðir, sem fengnar eru hjá FMS, í eigin þágu, nema til að flytja fisk til og frá FMS.

2.5. FMS er með samning við Umbúðamiðlun hf. (UM) um afhendingu umbúða til viðskiptavina FMS og UM og gilda reglur UM um umbúðirnar alfarið í þeim viðskiptum.

3. Vanefndir.

3.1. Rísi deilur vegna stærðar eða gæða afla, sem seldur er á fjarskiptauppboði, skal starfsmaður FMS látinn vita strax, eða eigi síðar en 24 klst frá sölu, til að útkljá deiluna. Ef um réttmæta kvörtun er að ræða, greiðir seljandi kostnað sem af hlýst, en kaupandi ef kvörtunin er ekki á rökum reist. Hafi seljandi gefið rangar upplýsingar skal FMS finna lausn í samráði við deiluaðila. Sé um verulegan mun að ræða á kaupandi rétt á að láta söluna ganga til baka, en seljandi er samt skuldbundinn til að greiða uppsett sölulaun til FMS. Hafi verið um rangar upplýsingar að ræða og gangi salan til baka, þá er FMS ekki lengur skuldbundinn til að selja aflann.

3.2. Kaupanda er skylt að taka afla í umbúðum ef sala hans fer fram í umbúðum. Kaupandi ábyrgist umbúðir afla frá því þær eru komnar á flutningstæki á hans vegum þar til hann skilar þeim á umsaminn stað, innan 3ja sólarhringa. Glatist hluti umbúða eða ef um tjón verður að ræða, ber kaupanda að bæta eiganda þeirra skaðann. FMS ber enga ábyrgð á umbúðunum seljenda, en sér um endurheimtu þeirra.

4. Uppboð - Uppgjör - Reikningsskil.

4.1. Fyrir uppboð verða allar upplýsingar um áætlað magn, samsetningu afla, meðalþyngd, gæði , löndunarstað, og komutíma seljanda að vera tiltækar fyrir kaupendur. Skulu þessar upplýsingar skráðar í tölvu FMS og yfirlit yfir þær prentað og látið liggja frammi fyrir uppboð.

4.2. Samkvæmt lögum um uppboðsmarkað skal krefjast greiðslutryggingar af kaupanda, sé ekki um staðgreiðslu að ræða. Kaupandi verður því að koma fyrst að hafa samband við Reiknistofu fiskmarkaða hf, þar sem gengið verður frá greiðslumáta. FMS er í samstarfi við Reiknistofu fiskmarkaða hf (RSF). Kaupendur leggja ábyrgðir sínar inn hjá RSF, stílaðar á RSF, og mun RSF sjá um innheimtu reikninga fyrir fiskkaup á FMS ásamt þeim fiskkaupum sem kaupandi hefur gert á öðrum fiskmörkuðum tengdum RSF. Ábyrgðirnar gilda því á öllum fiskmörkuðum tengdum RSF. RSF gætir að því að farið sé eftir þeim reglum sem gilda um greiðslur og reikningsskil allra fiskmarkaðanna og viðskiptavina þeirra. Þeir sem staðgreiða þurfa að “deponera” fyrir áætluðum kaupum.

4.3. Kaupandi skal í upphafi skrá sig hjá FMS þar sem fram koma allar nauðsynlegar upplýsingar honum tengdar og skrifa undir yfirlýsingu um að hann hafi kynnt sér starfsreglur FMS. Kaupanda verður því næst afhent númeraspjald, sem hann notar við uppboðið, tengt nafni hans og greiðslutryggingu, og verða þær upplýsingar skráðar í uppboðstölvu.

4.4. Ekkert lágmarksverð er í gildi, en hver seljandi getur ákveðið lágmarksverð innan ákveðinna marka. Ef fiskurinn selst ekki yfir því verði á uppboði verður seljandi að finna kaupanda sjálfur, en samt sem áður að greiða FMS allan áfallinn kostnað, þ.m.t. uppboðslaun (sjá gjaldskrá). Sé ekki um lágmarksverð að ræða tryggir fiskmarkaðurinn sölu alls aflans.

4.5. Boðið er upp ýmist með tölvu, og birtast þá upplýsingar um seljanda, tegund, magn o. s. frv. á skjá, eða á gamla mátann, þ.e. uppboðshaldari þylur upplýsingarnar upp. Uppboðshaldari blæs til uppboðs og segir byrjunarverð, eða þá byrjunarverð birtist á skjánum. Byrjað er á lægsta verði og talið er upp. Þeir sem ætla að bjóða í lyfta númeraspjaldinu. Þegar aðeins eitt spjald er eftir á lofti er handhafa þess spjalds slegið boðið á því verði er seinast var talið ( eða er á skjánum). Handhafi spjaldsins ákveður hve mikið magn hann kaupir og er það samtímis skráð í tölvuna, sem síðan svarar til um hvort greiðslugeta kaupanda nægir til kaupanna. Þannig heldur uppboðið áfram þar til allur afli hefur selst.

4.6. Þegar boðið er upp á tveim eða fleiri stöðum samtímis er notað tölvustýrt uppboðskerfi RSF. Þegar eitt spjald er eftir samanlagt á öllum stöðunum, stöðvar uppboðshaldari þá talninguna og gengur úr skugga um að rétt sé að öllu farið, og ef svo er slær hann viðkomandi kaupanda boðið. Þegar fiskur er til sýnis á gólfi afgreiðslustaðar FMS er gert ráð fyrir að kaupandi kynni sér ástand fisksins áður en hann kaupir. Þetta þýðir að kaupandi sem staddur er á stað A þarf að kynna sér ástand þess fisks sem er til sýnis á stað B, og hann hefur áhuga á að kaupa, til að geta boðið í til jafns við þann sem staddur er á stað B. FMS reynir að veita upplýsingar um aldur og stærð fisksins og er kaupandi sem kýs að kaupa fisk óséðan á þennan hátt alfarið ábyrgur fyrir þeim kaupum.

4.7. Eftir kaup fær kaupandi í hendur afhendingarseðil sem hann framvísar á afgreiðslustað, og fær aflann afhentan samkvæmt honum. Kaupandi eða starfsmaður hans kvittar fyrir móttöku aflans og umbúðunum.

4.8. Sé afli í umbúðum, ber kaupanda að skila þeim eins og reglur Umbúðamiðlunar hf. eða annars eiganda umbúðanna kveða á um.

4.9. Endanlegar greiðslur á fiskkaupum fara fram eftir reglum Íslandsmarkaðar sem sér um öll uppgjör er varða seljendur fyrir FMS.

4.10. Innborganir kaupenda fara eftir reglum RSF samkvæmt ábyrgðum.

4.11. Kaupanda er óheimilt að kaupa áfram ef hann greiðir ekki á gjalddaga, þó ábyrgð sé ekki að fullu nýtt. RSF má þó gera undantekningu frá þeirri reglu.

5. Þóknun.

5.1. Þóknun fiskmarkaðsins er samkvæmt gjaldskrá hverju sinni.

6. Önnur ákvæði.

6.1. Fiskmarkaðurinn áskilur sér rétt til breytinga á framangreindum starfsreglum að fenginni reynslu.

6.2. Starfsreglur þessar eru háðar staðfestingu sjávarútvegsráðherra.

Suðurnesjum í október 2008.