Fiskmarkaður Suðurnesja

Hafnargötu 8
245 Sandgerði
Sími 422-2400
Fax: 420-2311
fms (hjá) fms.is


Leita á síðunni




Reiknistofa Fiskmarkaðanna

Fiskistofa

Veðurstofa

EAFPA

Iceland Responsible Fisheries

« Ný gæðastefna FMS | Forsíða | Lokun um helgar sumarið 2010 »

Áskorun til sjávarútvegsráðherra

» Þriðjudagur 9. mars 2010 «

Með stórfelldum niðurskurði á aflaheimildum s.l. haust er vegið að grundvallar starfssemi fiskmarkaða í landinu. Afleiðingar þessa mikla niðurskurðar eru tvennskonar hvað varðar framboð á fiskmörkuðum. Margar útgerðir eru nú í byrjun marsmánaðar að stöðvast og einnig hefur niðurskurðurinn þær afleiðingar að nánast ekkert framboð er á leigumarkaði með aflaheimildir. Fjöldi fiskvinnslufyrirtækja sem byggja vinnslu á hráefnisöflun með kaupum á íslenskum fiskmörkuðum eru nú í mjög alvarlegri stöðu og sjá í raun ekki fram á annað en fjöldauppsagnir fiskvinnslufólks. Slíkt mun hafa alvarlegar afleiðingar á mörkuðum okkar erlendis með íslenskar sjávarafurðir.

Niðurskurður aflaheimilda og algjört frost á leigumarkaði hefur hvað mest áhrif á þær útgerðir sem staðið hafa undir stöðugu framboði á íslenskum fiskmörkuðum.

Með hliðsjón af aflabrögðum undanfarna mánuði teljum við að engin hætta sé tekin þótt aflaheimildir verði auknar verulega og er í því sambandi hægt að vitna í útreikninga Hafró.

Við skorum því á sjávarútvegsráðherra að auka aflaheimildir í þorski, ýsu, ufsa,karfa, keilu og löngu.

Fiskmarkaður Íslands, Fiskmarkaður Suðurnesja, Reiknistofa fiskmarkaða.