« Ný símanúmer hjá Fiskmarkaði Suðurnesja | Forsíða | Ný gæðastefna FMS »
Breytingar í Hafnarfirði + Sala á Drangsnesi
» Fimmtudagur 15. október 2009 «
FMS hefur gert eftirfarandi breytingar á starfssemi sinni í Hafnarfirði. Kristján Atli Ragnarsson hefur verið skipaður stöðvarstjóri FMS í Hafnarfirði og skulu allar fyrirspurnir og/eða ábendingar varðandi starfsemina þar berast til hans. Hægt er að ná í Kristján í síma 824-2406 á milli kl. 6-16 alla virka daga og þá er einnig hægt að senda honum tölvupóst á netfangið kristjan(hjá)fms.is.
Þá hefur einnig orðið sú breyting að framvegis verður allur fiskur af Drangsnesi seldur í gegnum starfsstöð FMS í Hafnarfirði. Þessi fiskur hefur hingað til verið seldur í gegnum FMS Ísafirði en nú hefur verið ákveðið að breyta þessu af þeirri ástæðu að allur fiskur af Drangsnesi kemur inn á gólf í Hafnarfirði fyrir afgreiðslu til kaupenda og því er eðlilegra að hann sé einnig seldur þaðan. Þetta ætti ekki að hafa nein bein áhrif á kaupendur af Drangsnesi önnur en þau að gæðaeftirlit með fiski þaðan mun aukast.




